Við erum afskaplega stolt af því að sýna ykkur hvernig við ætlum að kynna VAKANN fyrir öllum flugfarþegum hjá Icelandair.
Þessi auglýsing verður í kynningunni um Ísland sem er spiluð fyrir farþega Icelandair fyrir hverja brottför. Sýningar hefjast núna í apríl. Með þessu móti náum við til á þriðju milljón farþega og hluti þeirra hyggur á ferðalög um Ísland.