Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatn er nýjasti liðsmaður Vakans. Nýverið bættust við gæðaviðmið fyrir tjaldsvæði og hostel í Vakann og Úlfljótsvatn er fyrst allra að hljóta þær viðurkenningar. Skátar til hamingju!
Kjarnastarfsemi Úlfljótsvatns snýst um að bjóða skátum, nemendum og öðrum æskulýðshópum vettvang fyrir ævintýri og fræðslu. Samhliða því meginmarkmiði okkar höfum við undanfarin ár í auknum mæli opnað staðinn fyrir almenningi og góð dæmi um það eru fjölskyldutjaldsvæðið okkar og hostelið, sem bæði styðja við kjarnastarfsemi okkar, segir Guðmundur Finnbogason, framkvæmdastjóri Úlfljótsvatns.
Við leggjum áherslu á að bjóða jákvæða og spennandi upplifun í öruggu umhverfi. Þetta gerum við til dæmis með spennandi afþreyingu fyrir gesti um helgar, en líka með því að bjóða sérsniðna dagskrá fyrir hópa, bæði íslenska og erlenda. Í því samhengi njótum við líka góðs samstarfs við marga ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi.
Það er okkur gríðarlega mikilvægt að gestir okkar upplifi sig velkomna og örugga. Markmið Vakans falla því vel að okkar markmiðum og innleiðingarferlið hefur reynst okkur gagnlegt við að festa í form ferla og starfshætti, segir Guðmundur.