RED bílaleiga er hluti af öflugri heild þar sem saman koma Kynnisferðir og Reykjavík Excursions. Saga þeirra nær aftur til ársins 1968 og eru þau í dag meðal stærstu fyrirtækja í íslenskri ferðaþjónustu. Reykjavik Excursions býður meðal annars upp á dagsferðir frá Reykjavík auk þess að vera alhliða ferðaskrifstofa á innlendum markaði og Kynnisferðir sem sjá um allan akstur fyrir RE. Einnig sjá Kynnisferðir um rekstur Flugrútunnar og City Sightseeing rútunnar sem býður upp á skoðunarferðir um Reykjavík.
Í ágúst í fyrra urðu Kynnisferðir og Reykjavik Excursions þátttakendur í VAKANUM og því eru öll þrjú fyrirtæki samstæðunnar orðnir þátttakendur, sem er sérlega glæsilegur árangur.
Bílar af öllum gerðum
RED bílaleigan er með afgreiðslur bæði á Keflavíkurflugvelli og Umferðarmiðstöðinni BSÍ. Bílaflotinn hefur stækkað ört en kappkostað er að bjóða aðeins upp á nýja bíla af öllum gerðum, allt frá smæstu fólksbílum til öflugra lúxusbíla.
Við óskum RED Bílaleigu til hamingju og bjóðum hana velkomna í VAKANN!
Á myndinni að neðan eru þau Kristján Daníelsson, Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir og Garðar Sævarsson með viðurkenningu VAKANS.