Nýsköpunarmiðstöð Íslands aðstoðar ferðaþjónustuaðila við innleiðingu á VAKANUM. Fræðslufundur um fyrstu skrefin er boðinn á netinu og nú í apríl verða tveir fundir.
Tveir fundir í apríl
Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þátttakendur skrá sig og fá síðan senda slóð í tölvupósti sem þeir nota til að skrá sig inn á fundinn. Fræðslan er hugsuð jafnt fyrir þá sem þegar hafa sótt um þátttöku í VAKANUM og eru að huga að innleiðingu og þá sem hyggja á umsókn.
Fyrsti fræðslufundur er mánudaginn 23. apríl kl. 13:00 14:00 og endurtekinn föstudaginn 27. apríl á sama tíma.
Skráning á fundina
Þátttakendur sendi skráningu með tölvupósti á netfangið erla.sig@nmi.is. Gefið upp nafn, netfang, heiti fyrirtækis og símanúmer og tilgreinið hvorn fundinn þið hyggist nýta ykkur.
Frestur til skráningar á mánudagsfundinn er til miðnættist 22. apríl og föstudagsfundinn til miðnættis 26. apríl.
Hámarks fjöldi þátttakenda á hverjum fundi eru 15 manns, bætt verður við fundum eftir þörfum.
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Erla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands,erla.sig@nmi.is, sími 522 9491.